Vestrið er berskjaldað

Punktar

Vopnaðir lambhúshettumenn frá Íslandi eða Spáni hefðu ekki getað hindrað hryðjuverkið í járnbrautarlestunum í Madrid né komizt að því, hverjir frömdu ódæðið. Lambhúshettumenn henta betur til að ná afsöguðum haglabyssum af dauðadrukknum Íslendingum, sem hafa keypt of mikið áfengi í Ríkinu. … Dálkahöfundurinn Nicholas D. Kristof ræddi í New York Times í vikunni um tvo möguleika á hryðjuverkum í New York. Annar er skjalatösku-atómsprengja í Grand Central, sem mundi drepa hálfa milljón manns. Hinn er kóbaltsprengja í Wall Street, sem mundi gera borgarhlutann óbyggilegan í marga áratugi. …