Leyndó

Punktar

Gaman er að lesa, að dómsmálaráðherrann hafi blár af bræði farið mikinn um ráðuneytið í fyrradag vegna birtingar DV á yfirheyrslum úr líkmannamálinu, sem héldu raunar áfram í blaðinu í gær. Það sýnir, að mikilvægt gat hefur verið rofið á þagnarmúrinn, sem yfirvöld hafa hlaðið um ýmsa málaflokka. … Almenningur í landinu getur fagnað, að fréttastofur landsins skuli vera sex, en ekki fimm eða jafnvel þrjár, eins og stóð til um tíma. Fyrir bragðið fær hann að fylgjast með mörgu fróðlegu og gagnlegu, sem yfirvaldið á ýmsum póstum kærir sig ekki um að verði á vitorði hins fyrirlitna pupuls. …