Pólitískt trúarofstæki

Punktar

Þeir höfðu engan áhuga á Osama bin Laden og Al Kaída, en voru helteknir af Saddam Hussein og Írak. Þeir stefndu að árás á gamlan skjólstæðing í Bagdað. Þeir vildu ekki sinna neinum gagnrökum og þess vegna komu árásirnar á World Trade Center og Pentagon eins og þruma úr heiðskíru lofti. … Þetta voru George W. Bush Bandaríkjaforseti og Donald Rumsfeld stríðsráðherra, Condoleezza Rice öryggisstjóri og Paul Wolfowitz hugmyndafræðingur. Þetta er gengið, sem hefur snúið heimsmálunum á annan endann og gert Bandaríkin að mestu ógnun nútímans við öryggi og frið á Vesturlöndum. …