Ástarjátning

Punktar

Ágæt saga um mikilvægi gemsans birtist fyrir nokkrum árum í Mogganum, þegar íslenzk kona, sem þá bjó á Ítalíu, skýrði frá athugunum sínum á mikilvægi símans fyrir ítölsku stórfjölskylduna, sem var í þann veginn að sundrast, af því að börnin voru úti um allar trissur að sigra heiminn. … Þá kom gemsinn. Mamman situr við símann heima í móðurgarði í Perugia og fær fréttir frá Antonio um, að hann sé að stíga úr lestinni í Milano. Hún flytur þær síðan til Mario, sem er að fara á fund í Torino, sem fréttist síðan til Alessöndru, sem er að fara í flug til Palermo og tekur bíl á vellinum. …