Neita að fullorðnast

Punktar

Kannanir leiða í ljós, að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar fylgjast ekki með íþróttaefni og fjórir þriðju hlutar fylgjast ekki með fótbolta. Samt breiðir boltinn úr sér á síðum blaða. Beinar útsendingar eru dýrasta efni ljósvakans og ryðja oft fréttum og öðru föstu dagskrárefni til hliðar. … Boltinn, einkum fótboltinn, er orðinn svo fyrirferðarmikill í lífi sumra áhangenda, að þeir skilgreina tilveru sína beinlínis á grunni hans. Þeir eru ekki fyrst og fremst Reykvíkingar, framsóknarmenn, sölustjórar eða heimilisfeður, heldur takmarkalausir stuðningsmenn Manchester United. … Þetta verður á endanum eins og í Miklagarði á miðöldum. …