Borgarstjóri stokki

Punktar

Nú er góður tími til naflaskoðunar hjá Reykjavíkurlistanum, mitt á milli síðustu kosninga og hinna næstu. Borgarstjórinn er mitt á milli þess að gera sig eða gera sig ekki. Margir eru orðnir leiðir á þaulsætnum oddvitum samstarfsins. Og í skipulagsmálum sætir listinn mikilli og vaxandi gagnrýni. … Vandi Reykjavíkurlistans er samt lítilfjörlegur í samanburði við vandræði samstarfsins í ríkisstjórn, þar sem helzti þjóðarleiðtoginn hefur glatað sambandi við fólkið og hinn býr við nagandi ótta um að fá ekki að verða forsætis. Þar er færi á naflaskoðun, ef einhvers staðar er færi á henni. …