Sykurskattur

Punktar

Fáir hafa áttað sig á, að fíkniefnið sykur er eitt mesta ógnarvopn nútímans, meginorsök margra sjúkdóma og fleiri dauðsfalla en þeirra, sem stafa af áfengi eða tóbaki, ólöglegum fíkniefnum eða löglegum lyfjum. Sykur er skæðari en bíllinn og allir hryðjuverkamenn heimsins samanlagðir. … Eðlilegt og sjálfsagt er, að fyrr en síðar verði reynt að stemma stigu við sykri með skatti og öðrum takmörkunum, sem notaðar hafa verið gegn öðru eitri. Áfengi og tóbak og bílar eru strangt skattlagðar vörur, tóbak er selt undir borði í verzlunum, áfengi og lögleg lyf í sérstökum verzlunum. … Ef menn telja, að reynslan sýni, að unnt sé að draga úr notkun áfengis og tóbaks með skatti og öðrum takmörkunum, er eðlilegt framhald að beita sömu aðferðum gegn sykri. …