1562 krónur á mánuði

Punktar

Einstæð móðir var nýlega dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex mánaða fangelsi fyrir að hnupla jakka, bol og kjól á dóttur sína, að verðmæti 9370 krónur. Hún þarf að sitja þennan geðveikislega dóm, sem er að tímalengd svipaður og fyrir nauðganir og misþyrmingar, sem valda fólki varanlegum skaða. … Það var ungur og nýskipaður dómari, sem fór út af kortinu að þessu sinni, trúr þeirri hefð, að smávægileg auðgunarbrot undirstéttarinnar á kostnað hinna ríku séu alvarlegri en líkamlegt ofbeldi innan undirstéttarinnar eða fjárglæfrar yfirstéttarinnar, ef þeir skipta tugum milljóna eða meiru. …