Fasismi fölnaði

Punktar

Mussolini þurfti að vinna sín stríð og hann mátti ekki sýna líkamlegan veikleika. Blettur má ekki falla á brynju fasistahertoga. Þá fara menn að missa tröllatrúna á hertogann mikla og fara að hætta að óttast hann. Þannig verður hann venjulegur og er ekki lengur talinn skaffa. … Hertoginn hefur tapað sínu fjölmiðlastríði og hefur verið á sjúkrahúsi. Skyndilega hefur þagnað hópurinn, sem hermdi eftir honum og vildi valta yfir umheiminn. Loksins erum við komin í frí fyrir stjórnmálum og verðum í friði í tvo mánuði áður en hvellur getur hafizt aftur með nýrri setu Alþingis. …