Reykt hrefna

Punktar

Þrír frakkar. Reykt hrefna er skemmtileg nýjung á Þremur frökkum, dálítið væmin, mætti vera meira reykt og þynnra skorin. Ég fékk hana á diski með piparrót, tveimur tegundum af hráum fiski og laxahrognum. Þetta var dæmigert hrámetis sashimi að japönskum hætti, eitt aðalsmerkja þessa góða staðar. … Að öðru leyti er staðurinn fiskréttastaður, með níu eða tíu fiskrétti í boði tvisvar á dag, fyrir 1520 krónur að meðaltali í hádegi og 2540 krónur að kvöldi, með tærri og sterkri súpu innifalinni í hádeginu. Hann hefur alltaf verið og er enn í ódýrari helmingi íslenzkra veitingahúsa. …