Rúnar kominn úr kuldanum

Punktar

Við Tjörnina. Rúnar Marvinsson er kominn úr kuldanum á Snæfellsnesi og aftur farinn að elda í fiskhúsinu Við Tjörnina á Kirkjutorgi, sem í tvo áratugi hefur verið eitt beztu veitingahúsa landsins. Rúnari fylgir jarðbundin íslenzk matreiðsla, ánægjulegt hvarf frá nýklassískri franskri matreiðslu, sem tröllríður vönduðum veitingahúsum okkar. … Rúnar notar íslenzk hráefni, fisk, sveppi og kryddjurtir. Hann matreiðir ekki eftir skólabókum, hann grillar lime og vefur mat í austrænar hrísgrjónaþynnur. …