Kvaldasti klárinn

Punktar

Þangað er klárinn fúsastur sem hann er kvaldastur. Svo segir í sautjándu aldar máltæki, sem er klæðskerasniðið fyrir kaup Símans á hlut í Skjá einum. Fyrst var tugum milljóna stolið af Símanum til að nota í þetta gæludýr Sjálfstæðisflokksins og nú er hann farinn að kasta góðum peningum á eftir vondum. … Síminn er ríkisfyrirtæki, rekið af leifum Kolkrabbans. Ýmsir aðrir umboðsmenn Kolkrabbans hafa tekið sína eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni Sjálfstæðisflokksins og látið afhenda sér gullnar fallhlífar til að stökkva yfir á ódáinsekrur digurra eftirlaunasamninga. En Síminn er ennþá ríkisfyrirtæki. …