Froskur í potti

Punktar

Matthew McAllester, stríðsfréttaritari Miami Herald í Írak, er ekki sammála Halldóri Ásgrímssyni, stríðsmálaráðherra Íslands, um ástandið í landinu. McAllester þarf líka sjálfur að lifa þar. Hann lýsti í grein í blaðinu á mánudaginn , hvernig aðstæður hafa hríðversnað síðustu mánuðina. … Fyrir ári gat McAllester ekið til Falluja og skýrt frá átökum, talað við reiða borgara, fengið sér hádegismat á þekktu veitingahúsi og ekið síðan aftur til Bagdað. Núna dettur honum ekki í hug að reyna þetta. Hann segir í blaðinu, að slíkt mundi jafngilda tilraun til sjálfsvígs. …