Rétt eldaður fiskur

Punktar

Tveir fiskar … Af vizku sinni hefur arkitekt hússins sett risaglugga út að bílastæðum og pínuglugga í eldhúsið, þar sem kokkur Tveggja fiska getur kíkt út á bátahöfnina til að koma sér í gott skap. Enda eldar hann mjög vel, er í toppklassa íslenzkrar veitingamennsku, ekkert illa haldinn af nýklassík kokkaskólans. Fyrst og fremst eldar hann ekki fiskinn lengur en nauðsynlega þarf, lætur hann hafa forgang fram yfir skreytingar á diski. …