Ofstækisþjóð

Punktar

Hálf bandaríska þjóðin er í þann mund að kjósa George W. Bush sem forseta í annað fjögurra ára kjörtímabil. Hún ógnar þar með helztu forsendum friðsællar framtíðar mannkyns á jörðinni, ekki bara í fjögur ár, heldur langt fram á veg. Hún leiðir okkur inn á braut ótta, haturs og grimmdar. … Hálf bandaríska þjóðin er stríðsóð. Hún lætur sig engu varða, þótt forsendur Íraksstríðs hafi reynzt vera falskar eða falsaðar. Hún lítur á sig sem fórnardýr og telur hernum heimilt að stunda hryðjuverk á saklausu fólki í öðrum löndum, enda lítur hún á útlendinga almennt sem skepnur. …