Grillið sprengdi skalann

Punktar

Hótel Saga … Grillið á Hótel Sögu blómstrar sem musteri matgæðinga á þessu hausti. Eftir áralangan vandræðagang fyrir og eftir eigendaskipti að hótelinu er staðurinn skyndilega kominn efst á topp íslenzkra veitinga undir handleiðslu Bjarna Gunnars Kristinssonar matreiðslumanns og Sævars Sigurðarsonar veitingastjóra og vínþekkjara. … Þótt Grillið sé nýklassískt er það ekki steingelt. Ég gef að vísu ekki mikið fyrir fyrirlestrana um, hvernig sýra eða sæta í víni passi við sýru eða sætu í matvælum. …