Íslenzk Ítalía

Punktar

Ítalía … Ítalía við neðanverðan Laugaveg sló í gegn á fyrsta degi og hefur síðan verið fullsetið gestum á kvöldin, bezt heppnaða veitingaghús landsins, sannur hornsteinn íslenzkrar veitingamennsku. … Enda er það íslenzkasta veitingahús landsins. Þar sitja gestir afar þröngt með brött stólbök í bakinu, glerplötu borðsins í fanginu og þunna pappírsservéttu í beltinu, allt að íslenzkum sið, snæðandi Íslands farsælu þjóðarrétti, pítsu eða pöstu á 1700 krónur eða örbylgjuhitaðan fisk með bakaðri kartöflu. Einhvern tíma verður komið með stórvirk tæki og allt úthaldið flutt upp í Árbæjarsafn. …