Heimsverð í Bankastræti

Punktar

Caruso … Kokkurinn í Caruso við Bankastræti fattaði í eitt skiptið, hvað ég var að gera. Þá hlífði hann pönnusteikta fiskinum við örbylgjuofninum, sem tekur allt bragð úr fiski, ef frysting er ekki þegar búin að því. Að öðru leyti kom allur steiktur matur snarpheitur úr örbylgjuofni, miklu heitari en pönnusteiktur matur er venjulega og æskilega. …