Asía aflraunamanna

Punktar

Asía … Kvöldmatur var vondur á Asíu við Laugaveg. Svínakjötið og lambakjötið var hvort tveggja ofsteikt og beinlínis seigt, svínakjötið á tréteinum undir þykku lagi af ótilgreindri sósu, sem huldi kjötið og vel það. Meira að segja kekkjuð hrísgrjónin voru léleg eins og þau væru upphituð eða frískuð undir heitri vatnsbunu. Bezt var sterka hoisin sojabaunasósan kínverska, sem fylgdi lambakjötinu í hóflegu magni. … Ég borða yfirleitt það, sem mér er rétt, sérstaklega þjóðlega rétti úr ýmsum heimshornum, jafnvel íslenzka, en hér gafst ég upp. …