Maður ársins

Punktar

Maður ársins veldur því, að Bandaríkjamenn þurfa að fara úr skóm og beltum í öryggiseftirliti, þegar þeir fara um borð í flugvél. Hann hefur líka gert pyndingar og ofbeldi að tækjum stjórnvalda í Bandaríkjunum og breytt þeim úr vestrænu ríki laga og réttar í ríki geðþóttaákvarðana framkvæmdavaldsins. … Hér er ekki beinlínis verið að tala um George W. Bush forseta, heldur hinn hryðjuverkahöfðingjann, Osama bin Laden, sem enn er ófundinn, þegar þetta er skrifað. Óbeint stýrir hann breyttri utanríkisstefnu Bandaríkjanna og hefur breytt heimsveldinu í spegilmynd hryðjuverkasamtakanna. …