Óhreint hjá Grýlu

Punktar

Hard Rock … Hreinlæti er ábótavant á Hard Rock rokkminjasafni Kringlunnar. Sex mánaða ryk og skítur er á láréttum flötum og sex ára ryk og skítur á láréttum rimlum í gluggatjöldum. Auk þess matreiðir Grýla stundum í eldhúsinu. Þetta er ekki staður til að borða á, þótt góð móttaka og þjónusta sé sem fyrr tromp staðarins. … Sem dæmi um matreiðslu Grýlu var hnausþykk hveitisúpa með skán, snarpheit með blaðlauksbragði, borin fram með hálfsoðnu fransbrauði brúnu. Annað dæmi var bragðlaust matarlímshlaup, sem gekk undir nafni kalkúns …