Áramótaskaup

Punktar

Mér finnst athyglisvert, hversu misjöfn sjónarmið eru á spaugstofu og áramótaskaupi hjá álitsgjöfum í fjölmiðlum. Ég er einn þeirra, sem sér hvítu hliðina, hef meira gaman af pólitísku skopi um líðandi stund, heldur en af því, sem ég kalla fimmaurabrandara hjá Sveppa og öðrum fjölmiðlungum, sem aðrir álitsgjafar hafa dálæti á. Líklega er þetta dæmi um aldursskiptingu í þjóðfélaginu. Hinir eldri hafa meiri áhuga en hinir yngri á því sem tengist pólitísku þrasi. Við teljum enn, að pólitíkin sé alfa og ómega lífsins.