Þín mengun

Punktar

Veður hefur verið gert út af, að jeppaeigendur mengi meira en eigendur léttra bíla. Slíkan samanburð má færa á fleiri svið. Sá, sem flýgur í sumarfrí til Kanarí, veldur einn og sér meiri mengun af völdum flugvélabenzíns heldur en hann mundi gera í jeppa á heilu ári. Þú ert ekki eins saklaus og þú heldur. Mengun af flugvélabenzíni er svo mikil, að í Evrópu á að fara að leggja á það mengunarskatt, sem nemur um þúsundkalli á hvern farseðil. Með sama hugarfari mætti leggja um þúsund króna mengunarskatt á hverju ári á hvern eiganda þungs jeppa. Sjáðu grein Zoe Williams í Guardian.