Hvað er að ykkur?

Punktar

Grátlegt er að horfa á ráðamenn Evrópu hoppa umhverfis geðveikan trúarofstækismenn, sem lætur hermenn sína stunda skipulegar pyndingar á útlendingum, – sem setur erlend ríki út og inn af gæðalistum, – sem vikulega ógnar einhverjum erlendum ríkjum, – sem heimtar, að önnur ríki fari í stríð með sér, – sem neitar að taka þátt í fjölþjóðlegu samstarfi, til dæmis um mannréttindi og stríðsglæpi, um náttúruvernd og þriðja heims hjálp. Af hverju þorir ekki einn einasti valdhafi í Evrópu að segja sannleikann um Bandaríkin, að þau eru á skömmum tíma orðin að viðurstyggð góðra manna.