Enn svindlar Sharon

Punktar

Nýjar loftmyndir ísraelska flughersins sýna, að stjórn Ísraels hefur undanfarið af auknum þunga leyft nýjar byggðir landnema í Palestínu, þótt hún hafi margoft lofað verndara sínum í Bandaríkjunum að gera það ekki. Chris McGreal skrifar um þetta í Guardian. Hann telur, að uppljóstrun flughersins, sem kemur í kjölfar ágreinings í stjórnmálum Ísraels, muni leiða til þess, að Palestínumenn fáist ekki til samninga. Sumir stjórnmálamenn í Ísrel segja núna, að ljóstrað hafi verið upp um skipulegt svindl stjórnvalda og umfangsmikinn stuld á landi í eigu Palestínumanna.