Vestnorræn blekking

Punktar

Undantekning var á þeirri reglu, að keppendur í Food & Fun séu atvinnulitlir miðlungskokkar. Hjá Sigga Hall eldaði meistarakokkurinnn Michel Richard, sem hefur 19 stig af 20 á skala GaultMillau og Gayot, á Citronelle í Washington DC. Fyrstu verðlaun fékk hins vegar René Redzepi, miðlungskokkur á Noma, kaffihúsi vestnorrænu sendiráðanna í Kaupmannahöfn. Ég var á Noma um daginn og varð fyrir vonbrigðum. Í fyrsta lagi er veitingahúsið hallærislega innréttað í gamalfögru pakkhúsi. Í öðru lagi var maturinn ekkert sérstakur. Enda hefur Noma enga stjörnu í Michelin-biblíunni.