Mannrán forsetabróður

Punktar

Dálkahöfundurinn Paul Krugman segir í New York Times, að hættulegir róttæklingar kristinna kirkjudeilda hafi mikil pólitísk áhrif. Til dæmis hafi Jeb Bush forsetabróðir sent óeirðalögreglu til að fremja mannrán, ná Terri Schiavo af spítalanum, þar sem hún bíður dauða síns. Hins vegar neituðu staðarlögreglumenn óeirðaögreglunni um aðgang. Þriðjungur kennara er beittur þrýstingi til að kenna sköpunarsöguna í stað þróunarkenningarinnar. Trúarofstækismenn í röðum lyfsala neiti að afgreiða lyf til getnaðarvarna. Ofstæki sannkristinna sé að verða svipað og gyðinga í Ísrael.