Árshátíðir eru þetta

Punktar

Árshátíðir eru samkvæmi, þar sem hávaði er svo mikill, að fáir heyra mikið af samræðum. Þær eru samkvæmi, þar sem útilokað er að reiða fram mat, sem er sambærilegur við það, sem fæst eftir korti á veitingahúsum. Þær eru samkvæmi, þar sem góðviljað fólk slefar í eyrun á þér. Þær eru samkvæmi, sem fela í skrautsýningar fyrir kjóla, sem síðan þarf að hreinsa bjórinn út. Þær eru samkvæmi, þar sem annar hver gestur stinkar af bjór. Þær eru samkvæmi, þaðan sem þú verður að forða þér eftir mat til að fá ekki timburmenn af tóbaki og vondu lofti. Fyrir þetta borga fyrirtæki og fólk.