Fangelsi í Viðey

Punktar

Ef Ísland væri alvöruríki færu landsfeðurnir að lokum í fangelsi með olíuforstjórunum fyrir svik og stuld við sölu ríkisbankanna. Þess vegna væri gaman að velta fyrir sér, hvaða glæsihús þurfi að kaupa til að gera Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni kleift að dveljast í þægindum til æviloka með olíuforstjórum, sem gerðu samsæri gegn þjóðinni. Góður staður væri Viðey, sem jafnframt væri lokuð almennum aðgangi og gerð að eins konar Alcatraz. Þá gæti það orðið þáttur í ferli erlenda ferðamanna að sigla umhverfis eyjuna, þar sem geymdir eru ráðamenn, sem sviku þjóðina sína.