Íbúðaverðlagið

Punktar

Enn er verið að æsa upp íbúðaverð, einkum í miðborg Reykjavíkur. Birtar hafa verið tölur um, að verð sé enn hærra í stórborgum Norðurlanda. Ekki beri að efast um, að það muni áfram hækka, að minnsta kosti vestan Snorrabrautar. Minna er talað um, að erlendis er í auknum mæli fjallað um, að húsnæðisverð sé sápukúla, sem springi í Bandaríkjunum innan árs og síðan annars staðar í heiminum. Ef það gerist hér, hafa margir tekið 100% lán hjá banka og standa andspænis því, að lán nemi til dæmis 20 milljónum en íbúðarverð 15 milljónum. Þá blasir gjaldþrot við mörgum