Með lögum skal land byggja og ólögum eyða. Svo heitir gamalt spakmæli. Löggan tekur stundum afstöðu til þessa spakmælis og fylgir þá jafnan ólögum. Þannig hafa löggur ofsótt mótmælendur frá Kárahnjúkum á leið þeirra til Reykjavíkur. Löggan hefur stöðvað bíla þeirra mörgum sinnum á leiðinni, væntanlega til að sýna mátt sinn og megin. Það er skelfileg tilhugsun, að ribbaldar sem hafa ólög við hún skuli vera klæddir í úniform til að ofsækja fólk. Óþarfi er að taka fram, að allar aðgerðir löggunnar eru ólöglegar samkvæmt íslenzkum lögum, því að dómsúrskurð vantar fyrir þeim.