Háværir Ísraelsvinir

Punktar

Stuðningsmenn Ísraels eru háværir, einkum á ofsatrúarstöðinni Omega og í kjallaragreinum Moggans. Þeir fara frjálslega með staðreyndir og mikla fyrir sér falsaðar stríðsfréttamyndir frá Líbanon. Við höfum öll séð þessar falsanir og vitum, að þær skipta nánast engu máli. Staðreyndin er, að Ísrael hefur háð tryllt stríð gegn almenningi í Líbanon eins og lengi áður í Palestínu. Klasasprengjuríkið Ísrael er fremsti fulltrúi hins illa í heiminum um þessar mundir. Því fer vel á, að ríkið sé stutt af rugluðum trúarofstækismönnum og kjósendum Framsóknar samkvæmt skoðanakönnunum.