Vatnsmýrin er vinsælust

Punktar

Fólk hefur raunsærri hugmyndir um framtíð flugs innanlands en stjórnmálamenn og sérfræðingar. Könnun Fréttablaðsins sýnir, að það vill hafa flugvöll áfram í Vatnsmýri. Að þeim kosti frágengnum vill það hafa innanlandsflug á Keflavíkurvelli. Mjög fáir vilja hafa völlinn á Hólmsheiði og nánast engir vilja hafa hann á Lönguskerjum. Hafa þeir tveir kostir þó verið rækilega auglýstir, en hinir tveir gagnrýndir. Það stríðir bara gegn heilbrigðri skynsemi almennings að lagður verði nýr flugvöllur, þegar tveir vellir eru til. Valið stendur því milli Vatnsmýrar og Keflavíkurvallar.