Þú ert við völd og vilt koma á fasisma. Þú gerir þetta: 1. Þú býrð til ógnvekjandi óvini, einn innlendan og annan erlendan. 2. Þú býrð til gúlag. 3. Þú býrð til stétt fauta. 4. Þú setur upp öryggislögreglu. 5. Þú hrellir borgaralega andstöðuhópa. 6. Þú fangelsar og náðar án dóms og laga. 7. Þú tekur einstaklinga í gegn. 8. Þú nærð tökum á fjölmiðlum. 9. Þú lætur andstöðu jafngilda landráðum. 10. Þú tekur lög og rétt úr sambandi. Naomi Wolf segir í grein í Guardian, að tíu skrefin séu sameiginleg fastistum, svo sem Hitler og Pinochet. Og að Bush sé kominn áleiðis á öllum skrefunum.