Skítt veri með pakkið

Punktar

Ríkisstjórnin hefur samið við Noreg og Danmörku um varnir landsins. Fólk fær að vita um innihaldið eftir undirritun. Stjórnarandstaðan hefur fallizt á þá málsmeðferð. Allir þingflokkar eru sammála um, að þjóðinni komi ekkert við, hvernig höndluð eru mikilvægustu mál landsins. Þannig hefur alltaf verið samið um varnir án nokkurrar umræðu í þjóðfélaginu um innihaldið. Þannig niðurgreiðir ríkið stóriðju og ábyrgðist milljarða til að koma upp virkjunum á viðkvæmum stöðum. Allt eru þetta risavaxin mál. Fólk fær ekki einu sinni að vita um orkuverðið. Skítt veri með pakkið.