Ég hélt, að Gissur Sigurðsson og Heimir Karlsson á Bylgjunni væru fagmenn. Samt héldu þeir uppi hálftíma rugli í gærmorgun um rangfærslur í DV. Létu geðveika og marklausa innhringjara æra sig. Sögðu báðir, að ákæra væri ekki komin fram í máli. Samt var búið að kæra, búið að ákæra, búið að þingfesta og búið að játa. Vont er, þegar fagmenn og geðsjúklingar trylla hver annan á þennan hátt. Fara hamförum gegn miðli, sem hafði birt 100% rétta frétt. Ég veit ekki, hvernig Gissur og Heimir gátu ruglazt. Þeir eiga að vita, að innhringjarar í útvarpi eru yfirleitt geðveikir og örugglega marklausir.