Gæludýri hossað

Punktar

Gott var hjá Árna Mathiesen að minna mig á spillingu Sjálfstæðisflokksins. Maður gleymir því inn á milli, að flokkurinn er alveg eins og Framsókn sáluga. Þetta eru flokkar auðs og aðstöðu, sem stefna að betri aðstöðu og meira auði gæludýra. Árni tók son Davíðs Oddssonar upp um tvö gæðastig fram fyrir þrjá hæfustu umsækjendurna um stöðu héraðsdómara. Dómnefnd hafði sett Þorstein Davíðsson í botnsæti umsækjenda. Árni nennir ekki að ræða málið efnislega, en flytur hefðbundinn nautaskít. Enda veit hann, að kjósendur Sjálfstæðisflokksins vilja, að flokkurinn sé spilltur og hossi sínu liði.