Ég trúi nýsjálenzkum blaðamanni betur en íslenzkum almannatengli Bjarkar. Hef langa reynslu af, að Íslendingar ljúga, unz þeir eru orðnir bláir í framan. Hins vegar hef ég enga slíka reynslu af útlendingum öðrum en almannatenglum, Bandaríkjastjórn og starfsliði Atlantshafsbandalagsins, einkum Jamie Shea. Ég held, að Glenn Jeffrey hafi ekki verið að abbast upp á Björk, áður en hún reif bolinn hans. Það stafar af, að Björk hefur áður misst stjórn á skapi sínu og látið það bitna á ljósmyndara. Hins vegar játa ég, að fréttir af málinu eru of óskýrar til að taka eindregna afstöðu.