Margt er gott um Robert Fischer að segja. En of mikið væri honum hossað með því að grafa hann í heiðursreit á Þingvöllum. Þar eru fyrir Einar Ben og líklega einnig Jónas Hallgrímsson. Þar er því valinn maður í hverju rúmi. Ef fólki finnst gott að hafa þar fjölmenni, má bæta við Halldóri Laxness. Robert Fischer á ekki erindi þangað. Ég efast líka um, að okkur sé ætlað að taka alvarlega þesslega tillögu vina og stuðningsmanna Fischers. Hins vegar má gjarna reisa honum verðugan minnisvarða, helzt við Laugardalshöll. En heiðursreitur á Þingvöllum er bara fyrir allra helztu stórskáld okkar.