Fínn er málefnasamningur nýja meirihlutans, tæpitungulaus. Ég hefði ekki gert hann betri. Ekki verði byggt á flugvallarsvæðinu. Mislæg mót verði á Kringlumýrar- og Kópavogsbraut. Götumynd Laugavegs verði varðveitt. Strætó verði efldur og hafður ókeypis fyrir fleiri. Gerð Sundabrautar verði knúin fram. Og velferð aukin með áþreifanlegum hætti. Meirihlutinn er að vísu tæpur, Íhaldið með einum heilsutæpum manni án baklands og án varaskeifu. Það er næstum eins tæpt og fyrri meirihluti, sem hafði tvær lausbeizlaðar rafeindir. Vonandi hangir nýi meirihlutinn og kemur stefnuskránni í verk.