Sex mánaða svefn

Punktar

Þorgeir Eyjólfsson hefur verið gagnrýndur fyrir heimskulegar fjárfestingar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna síðustu mánuði. Sjóðurinn hefur fjárfest í Kaupþingi, Bakkvör og Exista, sem voru að lækka í verði. Þorgeir svarar þessu engu í svokölluðu svari. En fjallar um fjárfestingar sjóðsins fyrir ellefu árum og fyrir tíu árum og sumpart fyrir 28 árum. Menn eru ekki að gera grín að Þorgeiri fyrir að hafa verið vakandi fyrir áratugum. Menn eru að gera grín að honum fyrir að hafa sofið síðustu mánuði. Aukið magn er í fjölmiðlum af útúrsnúningum almannatengla að hætti Þorgeirs Eyjólfssonar.