Enn er verið að ráða óþarfa sendiherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur tekið upp ósiði forveranna. Rekur vinnumiðlun fyrir aflóga pólitíkusa. Við höfum ekkert að gera við allar þessar silkihúfur. Sendiherrar voru ekki spurðir ráða í útrásinni. Hún fór framhjá þeim. Þeir stíga fyrst og fremst gamaldags menúett. Í honum heimsækja þeir aðra sendiherra og eru sóttir heim af þeim eftir sérstöku kerfi. Gagnslaust og kostar mikið fé. Víðast er nóg að hafa innfædda konsúla til að hjálpa nauðstöddum og útvega pappíra. Konsúlar kosta ekkert nema orður og hlýtt handtak, hafa gaman af starfinu.