Skítugir skór kínverskir

Punktar

Kína bælir þessa dagana niður óeirðir í Tíbet vegna fimmtíu ára afmælis hernámsins. Kína á ekkert tilkall til Tíbet, lagði undir sig sjálfstætt ríki. Ráðamenn Kína vaða líka á skítugum skóm um heiminn. Um allan heim styðja þeir ofbeldismenn og harðstjóra, alla, sem eru andvígir vestrænu lýðræði. Eru núna mikið á ferli í Afríku. Borga fyrir stríð og hernám Íraks með því að safna dollurum. Taka vatnið af mörgum sýslum eigin lands til að keppnisfólk og gestir geti haft vatn á olympíuleikunum. Hvaða jólasveinum datt í hug að hafa olympíuleika í Kína, heimsins stærsta fangelsi?