Kirkjugarður á gangstétt

Punktar

Næststærsti bílakirkjugarður Seltjarnarness er á gangstéttinni við einbýlishúsið að Kirkjubraut 13. Þar býr líklega fólk, sem á erfitt með að laga sig að siðvenjum í þéttbýli. Um átta skrjóðar eru á stéttinni, sumir með númerum og aðrir ekki. Þeir hafa verið þar síðan ég fór að ganga daglega um götuna. Til þess að komast framhjá kirkjugarðinum, þarf að ganga út á miðja götu. Það er auðveldara núna, þegar svellin hafa bráðnað. Stærsti bílakirkjugarðurinn á Nesinu er nálægt Gróttu, við Bygggarð. Þar eru fjórtán bílar við náttúruminjasvæði. Bílar eru líklega náttúruminjar.