Viltu hafa áhrif

Punktar

Samfylkingin býður mér að hafa áhrif. Hún hefur sent dreifibréf, boðið mér og öðrum Seltirningum á fund. Þar ætla Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra og fleiri að kenna mér að hafa áhrif. Jóhanna veit ekkert um það. Hún hefur engin áhrif. Í hennar ráðherratíð hefur magnazt mismunun stjórnvalda gegn þeim, sem minnst mega sín. Um ráðherra Samfylkingarinnar gildir almennt, að þeir hafa engin áhrif. Dæmigerður er Össur Skarphéðinsson álráðherra, sem er eins og Valgerður Sverrisdóttir var. Að öðru leyti en því, að hún hefði aldrei fengið grúppíu-fiðring í magann af að sjá George W. Bush álengdar.