Götustrákar Davíðs

Punktar

Vandamál flestra ráðherra Sjálfstæðisflokksins er uppeldi þeirra hjá Davíð Oddssyni, þáverandi forsætis. Þeir reyna enn að temja sér ósiði hans, sem hann komst upp með. Úr því að Davíð gat rifið kjaft við umbann, telur Árni Mathiesen sér það líka kleift. En Davíð hafði kvóta, var formaður flokks þrælsóttans. Hann er raunar enn á fullu í vænisýki. Sakaði í dag ónefnd illmenni um að reyna að velta krónunni. En Árni er bara götustrákur eins og Björn Bjarnason. Árni sparkaði í umbann og Björn sparkaði sýslumanninum úr Leifsstöð. Ég held, að þjóðin muni ekki fyrirgefa hortugum götustrákunum.