Geir og Ingibjörg ákváðu að halda áfram að taka þátt í hernámi Afganistans. Þar með ákváðu þau að taka þátt í að efla hatur múslima á Vesturlöndum, þar með töldu Íslandi. Þau hafa hins vegar ekki ákveðið, hvort eigi að hleypa Úkraínu og Georgíu í Nató. Ekki hefur komið fram á fundi Nató í Búkarest, hvort þau heimta nafnbreytingu á Makedóníu að ósk Grikklands. Ekki er heldur vitað, hvort þau hafa rætt vangetu Nató við að finna glæpamanninn Radovan Karadzic. Óvíst er, hvaða afstöðu þau hafa til eðlisbreytingar Nató í varalið Bandaríkjanna í þriðja heiminum. Allt er þetta hið mesta leyndó.