Á leið til lögregluríkis

Punktar

Er ekki hægt að stöðva Rögnu Árnadóttur á leið hennar til lögregluríkis? Hún hefur ýmis járn í eldinum. Lætur semja frumvarp um forvirkar aðgerðir gegn fólki, sem er ekki grunað um neitt. Lætur ekki semja frumvarp um Vítisengla sérstaklega, heldur almennt um óvinsæl félög. Styður ofbeldi gegn nýbúum, til dæmis brottrekstur fólks, sem er í fullri vinnu. Gælir við rafbyssur handa löggunni, þótt þær hafi valdið hundruðum dauðsfalla í Bandaríkjunum. Telur, að hjartveikt fólk geti sjálfu sér kennt, ef það verður fyrir skoti. Af hverju þarf vinstri stjórn að hafa fasista sem innanríkisráðherra?