Að flýja vitfirringahælið

Punktar

Ef ég væri helmingi yngri, mundi ég flýja land. Það er ekki hægt að búa á vitfirringahæli. Vera hluti af þjóð, sem græðgisvæddist og neitar að taka afleiðingunum. Þjóðaratkvæðagreiðslan um IceSave var kornið, sem fyllti mælinn. Skelfilegt var að horfa á læmingja flykkjast á kjörstað undir stjórn klappstýru útrásarinnar. Þjóðremban er hornsteinn spillingar þjóðarinnar. Ef ég væri 35 ára, mundi ég flytja til Bruxelles og fara í útgáfu um vanda Evrópusambandsins. Af nógu er að taka og þar er framtíð álfunnar. Ég er hluti af stórgallaðri Evrópu. En ekki hluti af íslenzka vitfirringahælinu.