Ég er svo hneykslaður, að ég á varla orð. Fjármálajöfurinn Lýður Guðmundsson lætur sér ekki nægja að hafa tugi milljarða af samfélaginu. Til dæmis af Lífeyrissjóði verzlunarmanna, sem var og er undir stjórn fávita. Lýður ælir ekki bara á samfélagið. Þar á ofan ræðst hann á fjölmiðla og bloggara, rífst út í skilanefndir og landstjórnina. Maður, sem á að sitja áratugi í fangelsi fyrir fjármálasnilli, þeysir ælunni víðs vegar að hætti Davíðs Oddssonar. Eftir fyrirsögn ímyndarfræðinga. Enginn friður verður í samfélaginu fyrr en Lýði Guðmundssyni snillingi verður komið frá völdum í fjármálum þjóðarinnar.